Tökum höndum saman

Katrín Björg Ríkarðsdóttir skrifar:

Heimsfaraldur Covid-19 hefur haft gríðarleg áhrif á fólk um allan heim og afhjúpað ýmsa veikleika, ekki síst hefur mismunandi veruleiki kynjanna afhjúpast. Þegar faraldurinn skall á okkur í upphafi ársins var aukið ofbeldi eflaust ekki það fyrsta sem fólki datt í hug. Staðreyndin er hins vegar sú að víða um heim hefur mikil aukning orðið á heimilisofbeldi. Ísland er þar svo sannarlega ekki undanskilið, því miður.

Í ljósi ástandsins sem skapast hefur í samfélaginu vegna heimsfaraldursins er full ástæða til að draga fram öll þau tól og tæki sem tiltæk eru svo okkur takist að uppræta ofbeldi með samstilltu átaki. Það eru ekki eingöngu þolendur ofbeldis sem þurfa að þekkja hættumerkin heldur við öll því heimilisofbeldi er vandamál samfélagsins ekki síður en einstaklinga.

Stjórnvöld brugðust við strax í fyrstu bylgju faraldursins hér á landi og lögðu aukið fjármagn í málaflokkinn. Jafnréttisstofa fékk t.d. fjármagn í vor til þess að koma aftur í umferð vitundarvakningu um heimilisofbeldi sem unnin var undir slagorðinu Þú átt von. Um er að ræða fimm stutt myndbönd sem gefa innsýn í aðstæður þolenda og gerenda. Sýningartölur hafa gefið til kynna mikið áhorf enda þörfin fyrir upplýsingar mikil. Myndböndin eru enn aðgengileg á samfélagsmiðlum, á heimasíðu Jafnréttisstofu og á vefsíðu 112 en þar hafa verið teknar saman mikilvægar upplýsingar um ofbeldi í samböndum.

Það er líka rétt að vekja athygli á netnámskeiði sem Jafnréttisstofa útbjó með það að markmiði að auka þekkingu fagfólks á heimilisofbeldi. Efnið er þó þannig upp sett að það nýtist leikum sem lærðum. Námskeiðið er aðgengilegt á vefsíðu Jafnréttisstofu og samanstendur af þrettán myndböndum þar sem fagfólk á ýmsum sviðum sem tengjast kynbundnu ofbeldi fjallar um efnið. Leitast er við að svara spurningum á borð við: Hvernig berum við kennsl á þolendur og gerendur? Hvernig skal bregðast við? Hvaða úrræði eru fyrir hendi? Hverju þarf að huga að við vinnslu á málum er varða fatlað fólk, barnshafandi, fólk af erlendum uppruna, hinsegin fólk og einstaklinga af öðrum minnihlutahópum?

Við þurfum öll að taka höndum saman og gera okkur grein fyrir því að kynbundið ofbeldi varðar okkur sem samfélag. Eftir því sem við kynnum okkur málin betur, öflum okkur þekkingar og þekkjum úrræðin betur þeim mun betur gengur okkur að standa saman við að uppræta kynbundið ofbeldi.

 

Höfundur er framkvæmdastjóri Jafnréttisstofu.

Greinin er hluti af sextán daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Átakið er alþjóðlegt og var fyrst haldið árið 1991. Markmið þess er að knýja á um afnám alls kynbundins ofbeldis í heiminum.

Greinin birtist einnig á vísir.is