Tveir sérfræðingar í kynjaðri hagstjórn og fjárlagagerð á leið til landsins

Dagana 4.-6. maí verða Diane Elson og Susan Himmelweit hérlendis á vegum Jafnréttisstofu. Þær eru helstu sérfræðingar Breta í kynjaðri hagstjórn og fjárlagagerð og hafa meðal annars starfað með sjálfstæðum hópi sérfræðinga sem hafa það að markmiði að stuðla að auknu jafnrétti kynja með því að leggja mat á efnahagsstefnur og áætlanagerð.
Dr. Diane Elson er prófessor í félagsfræði við Háskólann í Essex og hefur starfað með UK Women‘s Budget Group í yfir 10 ár og er nú formaður félagsins. Hún hefur starfað fyrir Sameinuðu þjóðirnar bæði í höfuðstöðvum þeirra í New York og sem ráðgjafi víða um heim. Hún hefur verið iðin við skriftir og rannsóknir og samið leiðbeiningar um framkvæmd kynjaðrar hagstjórnar og fjárlagagerðar.

Dr. Susan Himmelweit er prófessor í hagfræði við The Open University og hefur einnig starfað með UK Women‘s Budget Group. Rannsóknarsvið Himmelweit er hagfræði heimilishalds, umönnunarhagkerfið og áhrif ólíkra efnahagsstefna á stöðu kynjanna. Hún hefur einnig skoðað skattakerfið sérstaklega.

Á meðan á dvöl dr. Elson og dr. Himmelveit stendur munu þær flytja erindi á ráðstefnu um kynjaða hagstjórn miðvikudaginn 4. maí og í framhaldi af ráðstefnunni halda námskeið fimmtudaginn 5. maí auk þess sem þær munu hitta lykilaðila í stjórnsýslunni sem vinna að innleiðingu kynjaðrar hagstjórnar og fjárlagagerðar hér á landi.

Heimsóknin til Íslands er hluti af verkefninu Samstíga III en Jafnréttisstofa hlaut styrk til að standa straum af verkefninu úr PROGRESS-sjóði ESB. Markmið þess er að auka þekkingu á samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða í opinberri stjórnsýslu auk þess að stuðla að því að hún verði nýtt í opinberri stefnumótun og ákvarðanatöku í samræmi við 17. grein jafnréttislaga nr. 10/2008.