Uppfærð útgáfa af bæklingnum Réttur þinn

Nú er komin út þriðja útgáfa bæklingsins Réttur þinn - Mikilvægar upplýsingar fyrir innflytjendur á Íslandi. Í bæklingnum er fjallað um réttindi fólks á Íslandi þegar kemur að nánum samböndum og samskiptum, til dæmis hjónaband, sambúð, skilnað og sambúðarslit, þungun, mæðravernd, þungunarrof, forsjá barna, umgengnisrétt, ofbeldi í nánum samböndum, mansal, vændi, kærur til lögreglu, gjafsókn og dvalarleyfi. Þar má einnig finna vísanir í frekari upplýsingar um aðstoð, svo sem símanúmer, heimilisföng og heimasíður ýmissa stofnana og félagasamtaka.

Bæklingurinn kemur nú í fyrsta skipti út á frönsku en eins og áður er hann fáanlegur á íslensku, arabísku, ensku, rússnesku, spænsku, taílensku og pólsku.

Endurskoðaður texti er unninn í samstarfi við Kvennaathvarfið, Mannréttindaskrifstofu Íslands og Reykjavíkurborg.

Útgáfan er hluti af verkefninu Byggjum brýr, brjótum múra og vitundarvakningunni Þú átt von sem styrkt er af áætlun Evrópusambandsins um réttindi, jafnrétti og borgararétt sem er unnið í samráði við dómsmálaráðuneytið, velferðarráðuneytið, Ríkislögreglustjóra, Lögregluna á höfuðborgarsvæðinu, Lögregluna á Norðurlandi eystra, Lögregluna á Suðurnesjum, Reykjavíkurborg og Akureyrarbæ.

Bæklingurinn er bæði prentaður og gefinn út rafrænt. Hægt að nálgast bæklinginn rafrænt hér eða fá send prentuð eintök. Pantanir má senda á netfang Jafnréttisstofu (jafnretti [hja] jafnretti.is) eða hringja í 460-6200.