Útifundur gegn kynbundnu ofbeldi

Í tilefni af alþjóðlegu 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi verður efnt til útifundar á Ráðhústorgi föstudaginn 5. desember
kl. 17.00.Þann 25. nóvember var 16 daga átaki gegn kynbundu ofbeldi ýtt úr vör í 18. sinn út um allan heim. 16 daga átak hefur í 18 ár unnið að því að draga kynbundið ofbeldi fram í dagsljósið sem mannréttindabrot. Hópar og samtök um allan heim hafa nýtt átakið til að krefjast aðstoðar og stuðnings til handa þolendum ofbeldis, til að styrkja forvarnastarf og þrýsta á um breytingar á löggjöf til að bæta réttarstöðu þolenda. Þá hefur átakið verið nýtt til að stuðla að því alþjóðlegum mannréttindareglum sé beitt til að vinna gegn kynbundu ofbeldi sem mannréttindabroti, heilbrigðisvandamáli og ógn við mannfrelsi og frið um allan heim.

Alþjóðleg mannréttindavernd og réttindi kvenna eiga undir högg að sækja og því er 16 daga átak árið 2008 tileinkað mannréttindayfirlýsingunni og aðgerðum til að tryggja konum þau réttindi sem hún kveður á um.

Á Íslandi verður sjónum sérstaklega beint að því að standa vörð um mannhelgi og mannréttindi kvenna í efnahagskreppunni. Yfirskrift átaksins árið 2008 er Mannréttindi kvenna eru ekki munaður!, til að leggja áherslu á að opinberar aðgerðir til að vernda mannréttindi kvenna eru ekki munaður sem kasta má fyrir róða þegar skórinn kreppir. Margt hefur áunnist undanfarin ár í baráttu gegn kynbundnu ofbeldi; íslensk stjórnvöld hafa gert ítarlega aðgerðaáætlun gegn ofbeldi á heimilum og kynferðisofbeldi og aðgerðaáætlun gegn mansali er í smíðum. Brýnt er að fyrirhugaður niðurskurður hins opinbera bitni ekki á framkvæmd þessara áætlana því vitað er að efnahagsþrengingar geta leitt til aukins kynbundins ofbeldis og bitna oft harðar á konum.
 
Meðal dagskráratriða á útifundinum á Ráðhústorgi eru stutt ávörp, ljóðalestur og söngur Barnakórs Tónlistaskólans, Karlakórs Akureyrar og nemenda í 8. bekk í Oddeyrarskóla, auk þess sem kveikt verður á kertum fyrir fórnarlömb kynbundins ofbeldis.
Kerti verða seld á torginu og mun ágóðinn renna til Aflsins sem eru systursamtök Stígamóta á Akureyri.

Þau félög sem standa að útifundinum eru:

• Samfélags- og mannréttindaráð Akureyrarbæjar
• Jafnréttisstofa
• Aflið – systursamtök Stígamóta
• Zontaklúbburinn Þórunn Hyrna
• Zontaklúbbur Akureyrar
• Menntasmiðja kvenna
• UNIFEM á Íslandi
• Norðurlandsdeild Ljósmæðrafélags Íslands
• Norðurlandsdeild Hjúkrunarfélags Íslands