Vestnorræn ráðstefna um jafnréttismál

Mánudaginn 7. júní verður haldin vestnorræn ráðstefna um jafnréttismál í boði forseta Alþingis undir yfirskriftinni: „Staða og völd kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi á Vestur-Norðurlöndum“. Á ráðstefnunni munu fyrirlesarar frá Færeyjum, Grænlandi og Íslandi fjalla um stöðu vestnorrænna kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi. Gerð verður grein fyrir sértækum leiðum til að til að jafna völd karla og kvenna í stjórnmálum og atvinnulífi, auk þess sem fjallað verður um kynjaða hagstjórn og jafnréttisuppeldi.Að loknum erindum verða pallborðsumræður þar sem konur sem eiga sæti á þjóðþingum Vestur-Norðurlöndum taka þátt ásamt fleirum.

Ráðstefnan verður haldin í Þjóðmenningarhúsinu frá kl. 09.30-16.30. Ráðstefnan er öllum opin og aðgangur ókeypis.

Vakin er athygli á því að bein útsending verður frá ráðstefnunni á slóðinni: http://straumur.nyherji.is/exms/Viewer/?peid=01b03a7c-93da-4a03-b292-46e666a06cc7  

Nánari upplýsingar um útsendinguna verður að finna á vef Alþingis undir liðnum Tilkynningar.