Yfirstígum óttann

Ráðstefnan ,,Yfirstígum óttann ? stefnan tekin á Forvarnir, fræðslu og heilun!" á vegum Blátt áfram og Barnarverndarstofu verður haldin 4. maí, kl. 9:00 -17:00, í Kennaraháskólanum. Meðal fyrirlesara er Robert E. Longo, MRC, LPC frá bandaríkjunum.Markmið ráðstefnunnar er að skoða allar þær leiðir sem samfélagið getur farið í að fyrirbyggja kynferðislegt ofbeldi á börnum. Hluti af forvörnum er að takast á við fordóma gagnvart fólki sem lifir af ofbeldi með fræðslu. Fordómar eru stærsti hluti vandans. Einnig þurfum við að taka ábyrgð á veiku fólki (gerendum) og koma með skýr skilaboð um hvernig við ætlum að stöðva þennan vítahring sem kynferðislegt ofbeldi er. Kynferðisafbrotamenn og konur þurfa hjálp, hvert geta þau leitað? Samfélag byggt upp af brotnu fólki er brotið samfélag. Fólk sem tekst á við afleiðingar ofbeldis er sterkt og hugrakkt fólk sem sýnir að hægt sé að horfast í augu við og yfirstíga óttann.

Ráðstefnan fer fram á ensku og íslensku.
Ráðstefnugjald 9000 kr. en 5000 kr fyrir nema. Innifalið í ráðstefnugjaldi er kaffi og léttur hádegisverður.

Nánari upplýsingar um Robert E. Longo og ráðstefnuna.

Nánari upplýsingar um ráðstefnuna svava@blattafram.is

Skráining

Dagskrá:

Kl: 9:00 stutt kynningu á Blátt áfram og markmiði ráðstefnunnar.

Kl: 9:05 Bragi Guðbrandsson forstjóri Barnaverndarstofu.

Kl: 9:15 ? 10:00 Robert E. Longo, MRC, LPC. Að fyrirbyggja kynferðislega misnotkun á börnum.

Kl: 10:00 ? 10:15 Kaffi hlé

Kl: 10:15 ? 12:00 Robert E. Longo, MRC, LPC Börn sem hafa verið misnotuð kynferðislega: Áhrif og bataferli. Skömm, þol, lífsvilji og heilun.

Kl: 12:00 ? 13:00 Hádegishlé

Kl: 13:00 ? 14:00 Robert E. Longo, MRC, LPC. Ungmenni sem gera sig sek um kynferðislega misnotkun. Tíðni, tafarlaus íhlutun og meðferð.

Kl: 14:00 ? 15:00 Robert E. Longo, MRC, LPC. Fullorðnir sem gera sig seka um kynferðislega misnotkun. Tíðni, íhlutun og meðferð.

Kl 15:00 ? 15:15 Kaffi hlé

Kl 15:15 ? 15:45 Þorbjörg Sveinsdóttir verkefnastjóri á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss. Hvenær verður kynferðisleg hegðun barna áhyggjuefni og viðbrögð við frásögnum barna og ungmenna um kynferðislega misnotkun.

Kl 15:45 ? 16:05 Kristín Berta Guðnadóttir félagsráðgjafanemi á fjórða ári í HÍ: Áhrif fjölmiðlaumfjöllunar um kynferðislega misnotkun á málafjölda í Barnahúsi.

Kl 16:05 ? 16:35 Jón Friðrik Sigurðsson forstöðusálfræðingur á geðsviði Landspítala Háskólasjúkrahúss: Ungmenni sem beita aðra kynferðislegri misnotkun, staðan á Íslandi og úrræði.

Kl: 16:35 ? 16:50 Opnar umræður og spurningar frá gestum til fyrirlesara.

Kl: 16:50 ? 17:00 Ráðstefnulok.