„Zero Tolerance“ Málþing um ofbeldi – 25. september

Málþing um aðgerðir gegn kynbundnu ofbeldi verður haldið á Grand hótel Reykjavík 25. september næstkomandi. Málþingið ber heitið „Zero Tolerance“ og mun fara fram á ensku. Það eru Norræna ráðherranefndin, innanríkisráðuneytið og velferðarráðuneytið ásamt Jafnréttisstofu sem halda málþingið sem er hluti af formennskuáætlun Íslands í Norrænu ráðherranefndinni 2014.Á málþinginu verður fjallað um Istanbúlsamning Evrópuráðsins og þær skyldur sem hann leggur þjóðum á herðar í baráttu við ofbeldi gegn konum og heimilisofbeldi. Ísland undirritaði samninginn í maí 2011 og er nú unnið að innleiðingu hans. Það er portúgalski þingmaðurinn José Mendes Bota sem fjallar um samninginn en hann er formaður þeirrar nefndar Evrópuráðsins sem vann að gerð samningsins

Sami Nevala (Finnlandi), frá Mannréttindastofnun Evrópusambandsins, mun  kynna nýja stóra könnun á ofbeldi gegn konum í 28 Evrópulöndum og Arni Hole (Noregi) fjallar um áhrif rannsóknarinnar á  stöðu þekkingar á Norðurlöndunum. Þá verður greint frá sérstakri úttekt Svía á lögum, reglum og aðgerðum sem beitt hefur verið þar í landi í baráttu við ofbeldi. Það er lögreglustjórinn Carin Götblad (Svíþjóð) sem kynnir úttektina.

Kynnt verða verkefni og aðgerðir frá hverju Norðurlandanna sem reynst hafa vel. Þar á meðal er áhættumat norsku lögreglunnar SARA sem verið er að innleiða um allan Noreg, íslenska „Suðurnesjaverkefnið“ , reynsla Dana af aðgerðaáætlunum gegn kynbundnu ofbeldi og skönnun sem beitt er innan heilbrigðis- og félagsþjónustunnar í Finnlandi til að greina kynbundið ofbeldi.

Málþingið er öllum opið meðan húsrúm leyfir.  Þátttökugjald er 5000kr.  Erindi eru flutt á ensku.