Tíu hollráð fyrir þig sem hyggur á þátttöku í stjórnmálum

Höfundar eru fulltrúar kvenna úr öllum flokkum skrifar

Tíu hollráð fyrir þig sem hyggur á þátttöku í stjórnmálum

Það er á ábyrgð okkar allra að kjörnir fulltrúar endurspegli þjóðina og fjölbreytileika hennar. Í marga áratugi hefur verið háð barátta fyrir jöfnum kynjahlutföllum í stjórnmálum sem annars staðar og hefur takmarkinu ekki enn verið náð þrátt fyrir að flestir séu sammála um mikilvægi þess.Okkur greinir á um leiðir og hvar ábyrgðin liggur. Stjórnmálaflokkarnir hafa allir gert eitthvað til að leiðrétta kynjamisréttið þó þeir hafi valið mismunandi aðferðir. Öll getum við þó verið sammála um að við viljum jafnrétti, að við verðum að hvetja til þess að það náist og leggja okkar af mörkum. Ein leið er til dæmis að hvetja konur til að taka þátt í stjórnmálum og komandi sveitarstjórnarkosningum. Frændur okkar Danir fóru í átak á þessu ári til að hvetja konur til þátttöku og gáfu út handbók með góðum ráðum til handa konum sem hyggja á þátttöku í sveitarstjórnum. Okkur þykir full ástæða til að miðla þessum góðu ráðum áfram til íslenskra kvenna og hvetja þær um leið til að hafa áhrif á umhverfi sitt með þátttöku í komandi kosningum.

1. Láttu vaða - ekki draga úr kjarkinum með afsökunum eins og reynsluleysi eða þekkingarskorti. Reynslan og þekkingin kemur með tímanum.

2. Skráðu þig í stjórnmálaflokk - taktu þátt í grasrótarstarfinu í flokkunum, þar er tækifærið til að hafa áhrif á stefnuna og koma áhuga sínum á framfæri.

3. Láttu í þér heyra - æfðu þig í því að taka til máls, skrifaðu greinar og taktu þátt í fundum.

4. Lærðu af reynslu annarra - taktu eftir því hverjir hafa áhrif og hvernig.

5. Vertu raunsæ - skoðaðu hvernig má samþætta vinnu, fjölskyldulíf og pólitíkina. Ekki ætla þér að vera fullkomin á öllum sviðum heldur gerðu þitt besta.

6. Tryggðu þér stuðning fjölskyldunnar - þátttaka í stjórnmálum krefst tíma og þá er mikilvægt að hafa traust bakland og að skyldum heimilisins sé jafnt skipt.

7. Styrktu tengslanetið - vertu dugleg að sækja fundi og taka þátt í félagsstarfi hjá hinum ýmsu þrýstihópum, það veitir reynslu og styrkir tengsl.

8. Forgangsraðaðu - nýttu kraftana þar sem áhugasvið þitt liggur og reynsla þín nýtist best. Það gerir vinnuna skemmtilegri og árangursríkari.

9. Vertu þú sjálf - stattu við sannfæringu þína og hafðu umburðarlyndi fyrir skoðunum annarra.

10. Mundu að staðan veitir tækifæri - með þátttöku í sveitarstjórnarmálum getur þú haft áhrif á nærumhverfið og færð rödd til að láta í þér heyra í stjórnmálum og fjölmiðlum. Nýttu fagþekkinguna innan kerfisins.

Að auki má bæta því við að konur innan stjórnmála eru flestar meðvitaðar um mikilvægi þess að styðja og styrkja hver aðra á þeim vettvangi sem karlar hafa verið ráðandi. Nýttu þér reynslu annarra kvenna hvar í flokki sem þær standa og leitaðu ráða.

Sjáumst í baráttunni!

Höfundar eru fulltrúar kvenna úr öllum flokkum, Drífa Hjartardóttir, formaður Landssambands sjálfstæðiskvenna, Drífa Snædal, framkvæmdastýra Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs, Kolbrún Stefánsdóttir, varaformaður Frjálslynda flokksins, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, formaður Kvennahreyfingar Samfylkingarinnar og Þórey A. Matthíasdóttir, formaður Landssambands framsóknarkvenna.