Jafnréttisþing 2022

Jafnréttisþing 2022 - Staða kvenna af erlendum uppruna á vinnumarkaði - aðgengi, möguleikar og hindranir.
Þingið verður haldið 26. október 2022 í Hörpu.

Skráning á jafnréttisþing 2022

Samkvæmt 25.gr. laga nr. 150/2020 um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna skal ráðherra boða til jafnréttisþings á tveggja ára fresti þar sem fjalla skal um jafnrétti kynjanna. Forsætisráðherra býður til jafnréttisþing 2022 þar sem fjallað verður um stöðu kvenna af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði. Umfjöllunarefni er aðgengi, möguleikar og hindranir sem konur af erlendum uppruna mæta á íslenskum vinnumarkaði. Skoðuð verður staða erlendra kvenna af ólíkum stéttum og með ólíka sögu. Einnig verður skapað rými til að raddir kvenna af erlendum uppruna heyrist og ræddar þær áskoranir og hindranir sem mæta þeim á vinnumarkaði.

Dagskrá jafnréttisþings 2022

9.00 Húsið opnar
  Morgunmatur og tækifæri til tengslamyndunar – mætum tímanlega
9.30 Setning jafnréttisþings 2022
  Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra
Fundarstýra: Silja Bára R. Ómarsdóttir, prófessor við Stjórnmálafræðideild Háskóla Íslands
9.35 Staða kvenna af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði
  Berglind Hólm Ragnarsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri
Í erindinu kynnir Berglind niðurstöður nýrrar rannsóknar sem framkvæmd var á vormánuðum 2022 á stöðu og líðan kvenna á Íslandi. Markmið rannsóknarinnar var að skoða hvernig ólíkir þættir er tengjast atvinnuþáttöku og fjölskylduábyrgð hafa áhrif á líkamlega og andlega líðan kvenna á Íslandi og hvernig það samband birtist eftir stéttastöðu þeirra, uppruna og búsetu. Í erindinu verður lögð áhersla á að greina stöðu kvenna af erlendum uppruna á íslenskum vinnumarkaði.
9.55 Verkakonur veraldarinnar. Um efnahagslega tilveru verkakvenna og baráttu þeirra við arðránið
  Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar
Í erindinu fjallar Sólveig Anna um efnahagslega kúgun verka og láglaunakvenna á íslenskum vinnumarkaði, hvaða áhrif slík kúgun hefur og hvaða tól eru líklegust til að skila árangri í efnahagslegri upprisu verkakvenna.
10.10 Atvinnumöguleikar kvenna af erlendum uppruna sem búsettar eru á Íslandi. Er grasið alltaf grænna hinum megin við lækinn?
  Claudia Ashanie Wilson hdl.
Í erindi sínu fjallar Claudia um reynslu kvenna af erlendum uppruna sem búsettar eru hér á landi við að fá menntun sína viðurkennda á Íslandi og um möguleika þeirra til að fá störf við hæfi. Hún fjallar stuttlega um lagaumhverfið og kynnir tillögur að úrbótum.
10.25 Mannauður, menningarauður, félagslegur auður og mismunun: Múslimskar innflytjendakonur á íslenskum vinnumarkaði. (Human, cultural, and social capital and discrimination: Muslim immigrant women's labour market participation in Iceland.) Erindið verður flutt á ensku.
  Fayrouz Nouh, doktorsnemi við Háskóla Íslands
Fayrouz kynnir fyrstu niðurstöður doktorsrannsóknar sinnar þar sem hún skoðar sérstaklega stöðu múslimskra kvenna á vinnumarkaði.
10.40 Raddir kvenna af erlendum uppruna – samstarf við félagið Hennar rödd.
Hennar rödd eru félagasamtök sem starfa með það að markmiði að auka vitund meðal almennings á stöðu kvenna af erlendum uppruna í íslensku samfélagi.
10.50 Kaffihlé
11.10 Sófaspjall
  Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra stýrir sófaspjalli með konum af erlendum uppruna auk fulltrúa frá aðilum vinnumarkaðar.
  Þátttakendur í sófaspjalli:
  • Aleksandra Leonardsdóttir, sérfræðingur í fræðslu og málefnum innflytjenda á skrifstofu ASÍ
  • Fida Abu Libdeh, framkvæmdastýra Geosilica
  • Jasmina Vajzović Crnac, stjórnarkona í félagasamtökunum Hennar Rödd
  • Paola Cardenas, formaður innflytjendaráðs
  • Sonja Ýr Þorbergsdóttir, formaður BSRB
  • Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri SA
12.00 Tónlistaratriði: Vigdís Hafliðadóttir, söngkona, skemmtikraftur og handritshöfundur
12.15 Jafnréttisviðurkenning 2022
  Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra veitir jafnréttisviðurkenningu
12.30 Ráðstefnuslit
  Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra

Öll eru velkomin en þátttakendur eru beðnir að skrá sig á skráningarsíðu fundarins. Gott aðgengi er fyrir hjólastóla og táknmálstúlkun stendur til boða sé þess óskað með 7 daga fyrirvara. Á þinginu er túlkað á íslensku/ensku.