Málaflokkur jafnréttismála fær aukið vægi innan stjórnkerfisins

Forsætisráðherra kynnti á fundi ríkisstjórnarinnar, 15. september síðastliðinn, skipan ráðherranefndar um jafnréttismál. Í ráðherranefndinni sitja forsætisráðherra, félags- og tryggingamálaráðherra og fjármálaráðherra. Að auki mun dóms- og kirkjumálaráðherra starfa með nefndinni að þeim málum er varða mansal og heimilisofbeldi. 
Eins og segir í fréttatilkynningu forsætisráðuneytisins er skipan ráðherranefndar um jafnréttismál liður í að auka vægi jafnréttismála innan stjórnkerfisins. Jafnframt segir í tilkynningunni að skipan ráðherranefndarinnar sé í samræmi við samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að forsætisráðuneytið fái aukið forystu-, verkstjórnar- og samræmingarhlutverk á sviði jafnréttismála.

Í fréttatilkynningunni frá forsætisráðuneytinu segir: „Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar frá 8. maí 2009 segir að áhrif kvenna í endurreisn íslensks samfélags í kjölfar efnahagsþrenginga verði tryggð; að ríkisstjórnin beiti sér fyrir að jafna hlutföll kynjanna á öllum sviðum samfélagsins; og að kynjasjónarmið verði höfð að leiðarljósi í aðgerðum til atvinnusköpunar, við mótun heildstæðrar atvinnustefnu fyrir Ísland, ákvörðun útgjaldaramma og hagræðingaraðgerðir næstu fjögurra ára og við fjárlagagerð og efnahagsstjórn. Þá er jafnframt kveðið á um að ríkisstjórnin grípi til aðgerða til að útrýma kynbundnum launamun, að lokið verði gerð jafnréttisstaðla á kjörtímabilinu og unnið frekar úr tillögum Jafnréttisvaktarinnar. Ennfremur er ásetningur um að efla starf jafnréttisfulltrúa ráðuneyta. Loks er kveðið á um að aðgerðaáætlun gegn mansali verði fylgt eftir svo og hugað að forvarnar- og viðbragðsáætlun til að bregðast við auknu heimilisofbeldi samfara versnandi efnahagsástandi.

Ráðherranefnd um jafnréttismál mun fylgja þessum markmiðum eftir, auk þess sem hún mun koma að gerð framkvæmdaáætlunar ríkisstjórnarinnar í jafnréttismálum, áætlunar um samþættingu kynja- og jafnréttissjónarmiða fyrir Stjórnarráðið í heild og jafnréttismats á einstaka stjórnarfrumvörpum, áætlunum og ákvörðunum sem haft geta áhrif á jafna stöðu kynjanna.“