Tveir fyrirlestrar

Á morgun, fimmtudaginn 27. janúar, verða tveir fyrirlestrar við Háskóla Íslands.  Ástríður Stefánsdóttir mun flytja  hádegisfyrirlestur á vegum RIKK en erindi hennar nefnist: Frelsi eða höft? Staðgöngumæðrun og staða kvenna. Á vegum Rannsóknarstofu um jafnrétti, menntun og kyngervi og Menntavísindasviðs HÍ, mun Debbie Epstein, prófessor við Cardiff-háskóla í Wales, flytja fyrirlestur sem ber yfirskriftina: Gagn-, sam- eða hingsegin? Kynferði og kynverund í breskum háskólum 1990-2010. Fyrirlestrarnir eru öllum opnir.

Hádegisfyrirlestur Rikk:
„Frelsi eða höft? Staðgöngumæðrun og staða kvenna.“
Ástríður Stefánsdóttir, dósent í siðfræði við Menntavísindasvið Háskóla Íslands
Staður: Askja, stofa 132
Tími: kl. 12.00-13.00.

Í þessu erindi verður byrjað á því að skilgreina nokkur algeng hugtök tengd staðgöngumæðrun og farið yfir helstu siðferðilegu álitaefni. Megináhersla verður lögð á stöðu kvenna í þessu sambandi og þá sérstaklega á stöðu staðgöngumóðurinnar. Í erindinu verður rakinn munurinn annars vegar á staðgöngumæðrun í hagnaðarskyni og hins vegar staðgöngumæðrun sem velgjörð, jafnframt verður skoðað hverjir hafa verið að nýta sér þá þjónustu sem hér um ræðir. Einnig verða kynntar þær siðferðisspurningar sem Íslendingar þyrftu að taka afstöðu til ef þeir samþykktu að leyfa staðgöngumæðrun á Íslandi. Nánari upplýsingar.


Rannsóknarstofu um jafnrétti, menntun og kyngervi og Menntavísindasviðs HÍ:
„Gagn-, sam- eða hingsegin? Kynferði og kynverund í breskum háskólum 1990-2010. “
Debbie Epstein, prófessor við Cardiff-háskóla í Wales
Staður: Bratta fyrirlestrarsal í húsnæði Menntavísindasviðs
Tími: kl. 15:00
Fyrirlesturinn er fluttur á ensku.

Prófessor Epstein mun í fyrirlestrinum byggja á rannsóknum sem gerðar voru með áratugar millibili í kringum síðustu aldamót. Þessar rannsóknir miðuðu að því skoða hvers konar kynverund eða kynhneigðargervi var í boði fyrir nemendur og starfsfólk háskóla í Bretlandi sem ekki fellur að hinum
gagnkynhneigðu viðmiðum samfélagsins. Þrátt fyrir miklar breytingar sem urðu í Bretlandi á þessu tímabili kom í ljós að sá heterósexismi (gagnkynhneigðarhyggja), sem ríkti á meðan fyrri rannsóknirnar fóru fram, voru enn þá mjög ríkjandi. Þetta hefur þau áhrif að nemendur, sem laga sig
ekki að gagnkynhneigðum viðmiðum, þurfa í fjölmörgum aðstæðum að laga hátterni sitt að ríkjandi viðmiðum til að forðast stimplun og útilokun. Epstein mun ræða hvernig flestum háskólum hefur ekki tekist að stuðla að því að önnur kynhneigð en gagnkynhneigð sé viðurkennd, jafnvel þótt verðlaun séu veitt þeim atvinnurekendum sem hafa stuðlað að vinsamlegra vinnuumhverfi
fyrir lesbíur og homma.

Prófessor Epstein er meðal þeirra fremstu í heiminum á sviði rannsókna innan hinseginfræða og menntunar.  Hún hefur einnig rannsakað fjölbreytileg önnur svið menntunar- og menningarfræða, t.d. karlmennsku og einelti, m.a. í Suður-Afríku, auk Bretlands. Það er mikill fengur að fá hana hingað til lands og hlýða á erindi hennar. Nánar um fyrirlesturinn