Ofbeldismenn á Íslandi

Hinn 12. október næstkomandi halda Stígamót ráðstefnuna "Ofbeldismenn á Íslandi" á Hótel Hilton. Ráðstefnan er ætluð öllum sem vilja dýpka skilning á því hverjir séu ofbeldismenn, af hverju þeir fremji ofbeldi, hvernig sé hægt að aðstoða menn til að hætta að beita ofbeldi og hvað það er í menningu okkar og samfélagi sem viðheldur ofbeldi. Meðal fyrirlesara eru innlendir og erlendir rannsakendur, fulltrúar félagasamtaka og stofnana sem veita aðstoð, sálfræðingar sem vinna með ofbeldismönnum og sérfræðingar sem hafa skoðað ofbeldi út frá samfélagslegum þáttum.

Sjá dagskrá hér.

Skráning hér