Fréttir

Jafnréttisráð óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar

Jafnréttisráð óskar eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar Jafnréttisráðs fyrir árið 2016. Viðurkenningu geta hlotið einstaklingar, fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. Í ár stendur til að veita tvær viðurkenningar. Eina til fyrirtækis, sveitarfélags eða stofnunnar og aðra til einstaklings, hóps eða félagasamtaka. 

Hnattrænn vandi karla … og hvernig á að bregðast við honum?

Jeff Hearn, prófessor í kynjafræði við hug- og félagsvísindasvið Örebro-háskóla í Svíþjóð og rannsóknaprófessor í félagsfræði við Huddersfield-háskóla, í Bretlandi, heldur áttunda fyrirlestur vormisseris, „Hnattrænn vandi karla … og hvernig á að bregðast við honum? Mótspyrna, ábyrgð og viðbrögð“, fimmtudaginn 31. mars, kl. 12-13, í fyrirlestrasal Þjóðminjasafns Íslands. Í fyrirlestrinum fjallar Jeff um nauðsyn þessa að endurskoða áherslur gagnrýnna rannsókna á körlum og karlmennsku í ljósi hnattrænna og þverþjóðlegra breytinga, svo sem hnattræns hagkerfis, fólksflutninga, upplýsinga- og samskiptatækni. Þetta skiptir ekki aðeins máli í rannsóknum og greiningu heldur einnig í stefnumótun og stjórnmálum. Þessi staða verður skoðuð með hliðsjón af spurningum um mótspyrnu, ábyrgð og mögulegum við brögðum við henni.

Kynlegar tölur

Bæklingurinn var gefinn út í tilefni af alþjóðlegum baráttudegi kvenna fyrir friði og jafnrétti þann 8. mars síðast liðinn. Kynlegar tölur hefur að geyma tölfræðilegar upplýsingar þar sem varpað er ljósi á ólíka stöðu karla og kvenna eins og hún birtist á ýmsan hátt í borginni og á landinu.  Í ár er sjónum beint m.a. að morðum , útvarpi og hlaðvarpi, heilbrigðismálum og íþróttafélögum í Reykjavík.

Bæklingurinn Konur og karlar á Íslandi 2016 er kominn út

Jafnréttisstofa gefur árlega út bæklinginn Konur og karlar á Íslandi í samstarfi við við Hagstofu Íslands og velferðarráðuneytið. Í bæklingnum er að finna samantekt á helstu tölum og hlut kvenna og karla á ýmsum sviðum samfélagsins. Í bæklingnum eru meðal annars upplýsingar um stöðu kynjanna á vinnumarkaði, í menntakerfinu, í fjölmiðlum og í áhrifastöðum, ásamt upplýsingum um mannfjölda, fjölskyldur og fæðingarorlof. Bæklingurinn er einnig gefinn út á ensku.

Hvað ef þorpið er óuppalið?

„Það þarf heilt þorp til að ala upp barn, en hvað ef þorpið er óuppalið?“ spurði Brynhildur Þórarinsdóttir móðir og rithöfundur í erindi sem hún flutti á fundi á alþjóðlegum baráttudegi kvenna í Hofi á Akureyri.  Fundurinn bar yfirskriftina Uppeldi barna í anda jafnréttis og var haldinn af Jafnréttisstofu, Zontaklúbbnum Þórunni hyrnu og Zontaklúbbi Akureyrar. Rúmlega hundrað manns sóttu fundinn. 

Kallað eftir framkvæmda- og aðgerðaáætlunum stjórnvalda

Árið 1985 fullgilti Ísland samning Sameinuðu þjóðanna um Afnám allrar mismununar gagnvart konum en hann var samþykktur á vettvangi SÞ árið 1979. Síðan þá hafa fulltrúar íslenskra stjórnvalda verið kallaðir nokkrum sinnum fyrir CEDAW nefndina til að gera grein fyrir því hvernig staðið hefur verið við samninginn. Þetta er eins konar yfirheyrsla þar sem fyrst er flutt skýrsla landsins en síðan spyrja nefndarmenn fulltrúana spjörunum úr um ýmis atriði sem þeim finnst að betur megi fara eða hvers vegna ekki sé búið að bæta úr því sem athugasemdir voru gerðar við síðast. Fulltrúar Íslands voru kallaðir fyrir nefndina 17. febrúar síðast liðinn og nú eru athugasemdir CEDAW nefndarinnar komnar fram. Kvenréttindafélag Íslands hefur vakið athygli á þeim og þær kalla sannarlega á umræður. Athugasemdirnar eru fjölmargar en sérstaklega er lögð áhersla á eftirfarandi:  1. að stjórnvöld samþykki tafarlaust aðgerðaáætlun gegn kynferðisofbeldi og heimilisofbeldi sem taki tillit til þarfa kvenna með fötlun og kvenna af erlendum uppruna, og tryggi fjármagn og mannafl til að lögregluembætti út um allt land geti tekið upp verklag lögreglunnar í Reykjavík í ofbeldismálum (verkefnið „Að halda glugganum opnum“). 2. að grípa tafarlaust til aðgerða, jafnvel sértækra aðgerða eins og kynjakvóta, til að fjölga hratt konum innan lögreglunnar, í Hæstarétti, og í háttsettum stöðum innan utanríkisþjónustunnar (stöðu sendiherra)

Bæklingur um kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi á vinnustöðum

Allir eiga rétt á því að starfsumhverfi þeirra einkennist af gagnkvæmri virðingu í samskiptum. Í því felst að starfsmenn eiga rétt á því að njóta skilyrðislausrar verndar gegn kynbundinni og kynferðislegri áreitni og öðru ofbeldi á vinnustað. Nú er kominn út bæklingur þar sem farið er yfir ýmis atriði tengt kynbundinni og kynferðislegri áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Að bæklingnum standa ASÍ, BHM, BSRB, KÍ, Jafnréttisráð og Jafnréttisstofa. Hann kemur út í dag, 8. mars, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna.

8. MARS ALÞJÓÐLEGUR BARÁTTUDAGUR KVENNA

Í dag er alþjóðlegur baráttudagur kvenna og af því tilefni er boðið upp á spennandi viðburði bæði á Akureyri og í Reykjavík. Jafnréttisstofa hvetur alla til að kynna sér og taka þátt í viðburðum dagsins. Uppeldi barna í anda jafnréttis verður rætt á Akureyri, Örugg í vinnunni? er á dagskrá á Grand Hótel, Konur í stéttastríði í Iðnó, opið hún hjá Stígamótum og fyrirlestur um stöðu kvenna innan ASÍ á Þjóðminjasafninu. 

Uppeldi barna í anda jafnréttis

Þann 8. mars n.k, á alþjóðlegum baráttudegi kvenna, standa Zontaklúbbarnir á Akureyri og Jafnréttisstofa  fyrir hádegisfundi í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri. Fundurinn sem ber yfirskriftina Uppeldi barna í anda jafnréttis hefst með léttum veitingum kl: 11:30. Fyrirlesarar eru Brynhildur Þórarinsdóttir móðir, rithöfundur og dósent við Háskólann á Akureyri og Jón Páll Eyjólfsson faðir og leikhússtjóri Menningarfélags Akureyrar. Brynhildur kallar erindi sitt Þegar Messi fór að spila í prinsessubleiku  - Hugleiðing um fyrirmyndir og staðalmyndir en Jón Páll nefnir sitt erindi Svarthöfði sigraður? Fundarstjóri verður Katrín Björg Ríkarðsdóttir aðstoðarmaður bæjarstjóra.

Örugg í vinnunni?

Alþýðusamband Íslands, BHM, BSRB, Kennarasamband Íslands, Jafnréttisstofa og Jafnréttisráð efna til hádegisverðarfundar þriðjudaginn 8. mars 2016 þar sem fjallað verður um kynbundna og kynferðislega áreitni og ofbeldi á vinnustöðum.