Fréttir

Stofnun SÞ um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna tekur formlega til starfa

Stofnun Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti og valdeflingu kvenna, UN Women, tók formlega til starfa þann 24.febrúar sl. Af því tilefni var efnt til sérstakrar dagskrár í höfuðstöðvum Sameinuðu þjóðanna í New York, en þar fer nú fram 55. fundur Kvennanefndar Sameinuðu þjóðanna. Í tillögu til þingsályktunar um alþjóðlega þróunarsamvinnu, sem utanríkisráðherra mælti fyrir á Alþingi 17. febrúar sl., er sérstök áhersla lögð á jafnréttismál sem þverlægt áherslusvið og UN Women tilgreind sem ein fjögurra lykilstofnana í þróunarstarfi Íslands.

Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi formlega stofnuð á Akureyri

Rannsóknarmiðstöð gegn ofbeldi, var formlega stofnuð í Háskólanum á Akureyri þann 21. febrúar sl. Markmið stöðvarinnar er að útrýma öllu ofbeldi, einkum gegn börnum og ofbeldi í nánum samböndum, m.a. með samvinnu við samsvarandi stofnanir og félög hérlendis og erlendis og með því að standa fyrir ráðstefnum og málþingum til að útbreiða þekkingu á ofbeldi og afleiðingum þess.

Ný norræn samstarfsáætlun í jafnréttismálum

Jafnréttisráðherrar norrænu ríkjanna hafa samþykkt samstarfsáætlun í jafnréttismálum fyrir árin 2011–2014 sem ber heitið Jafnrétti skapar sjálfbært þjóðfélag. Í áætluninni er sérstaklega fjallað um nauðsyn þess að karlmenn taki þátt í jafnréttisstarfi og umræðum um jafnréttismál og að tekið sé tillit til jafnréttissjónarmiða á öllum sviðum samfélagsins. Með þetta að leiðarljósi verður áhersla á virka þátttöku karla og drengja í jafnréttisstarfi og samþætting kynja- og jafnréttissjónarmiða fléttuð inn í öll verkefni sem kveðið er á um í samstarfsáætluninni.

Kynjuð fjárlagagreining á tímum niðurskurðar

Miðvikudaginn 16. febrúar heldur Diane Elson, prófessor í félagsfræði við Háskólann í Essex í Bretlandi og formaður UK Women‘s Budget Group, fyrirlesturinn „Kynjuð fjárlagagreining á tímum niðurskurðar.“ 

Þjónusta Stígamóta

Inga Vildís Bjarnadóttir kynnir meistaraverkefnið sitt í félagsráðgjöf sem fjallar um þjónustu Stígamóta kl. 12 þann 10.febrúar.

UN Women

Stofnunin UN Women auglýsir um þessar mundir eftir starfsfólki í 6 stjórnunarstöður hjá höfuðstöðvum samtakanna í New York en umsóknarfrestur rennur út 14.-15. febrúar nk.

Nýir tímar - breytt hagstjórn

Jafnréttisstofa býður til ráðstefnu um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð mánudaginn 14. febrúar kl. 13:00 á Hilton Hótel Nordica. Ráðstefnan ber yfirskriftina Nýir tímar - breytt hagstjórn. Aðal fyrirlesari verður Diane Elson einn helsti sérfræðingur heims á þessu sviði auk þess mun verkefnastjórn um kynjaða hagstjórn og fjárlagagerð kynna starf sitt og tvö tilraunaverkefni á hennar vegum verða kynnt.

Styrkir til rannsóknaverkefna - EDDA

EDDA – öndvegissetur auglýsir í þriðja sinn eftir umsóknum fræðimanna um styrki til rannsóknaverkefna sem taka mið af stefnu setursins. EDDA er rannsóknasetur í gagnrýnum samtímarannsóknum með áherslu á jafnrétti og margbreytileika í hug- og félagsvísindum. Umsækjendur sækja um styrki til verkefna sem má tengja með beinum hætti við rannsóknaáherslur í einum af sex rannsóknaklösum EDDU.

Samanburður á fæðingarorlofi og umönnunarstefnu Norðurlandaþjóða

Ný samanburðarrannsókn á fæðingarorlofi og umönnunarstefnu Norðurlandaþjóðanna verður kynnt á jafnréttisþinginu 2011 sem haldið verður á Nordica Hotel í Reykjavík 4. febrúar.

Ný heimasíða Alþjóðlega jafnréttisskólans (GEST)

Alþjóðlegur jafnréttisskóli (GEST) hefur opnað nýja vefsíðu. Alþjóðlegi jafnréttisskólinn er samstarfsverkefni Háskóla Íslands og utanríkisráðuneytisins. Meginmarkmið skólans er að skipuleggja og bjóða upp á nám og þjálfun sem miðar að því að auka getu stofnana og einstaklinga, sem koma að uppbyggingu og framkvæmd jafnréttisstarfs í þróunarlöndum og á fyrrum átakasvæðum.