Fréttir

Launamunur kynjanna minnstur hjá Akureyrarbæ

Launamunur kynjanna mælist nú aðeins þrjú prósent hjá Akureyrarbæ, ef marka má niðurstöður nýrrar launakönnunar sem Rannsókna- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri gerði. Þetta kom fram á málþinginu Kynbundinn launamunur – aðferðir til úrbóta, sem Jafnréttisstofa hélt á Hótel KEA í gær. Yfir 70 manns mættu á fundinn og spunnust líflegar umræður að erindunum loknum.

Auglýst er eftir verkefnastjóra í fullt starf

Jafnréttisstofa óskar eftir að ráða verkefnastjóra í fullt starf til tólf mánaða. Um er að ræða nýtt og spennandi þróunarverkefni á sviði jafnréttismála og jafnréttisfræðslu. Staðan var áður auglýst 7. nóvember og er auglýst aftur vegna aukningar á starfshlutfalli.

Hvað geta borgaryfirvöld gert til að sporna við ofbeldi gegn konum?

Í tilefni af 16 daga alþjóðlegu átaki gegn kynbundnu ofbeldi boðar Mannréttindanefnd Reykjavíkurborgar til málþings um hvernig borgaryfirvöld geti spornað við ofbeldi gegn konum. Málþingið verður haldið í Tjarnarsal Ráðhús Reykjavíkur föstudaginn 7. desember milli kl. 13:30 og 17:00.

Umfjöllun um leikritið Ökutíma í 07/08 í kvöld

Síðastliðið sunnudagskvöld var sérstök aukasýning á leikritinu Ökutímum eftir Paulu Vogel. Jafnréttisstofa og Leikfélag Akureyrar efndu til þessarar aukasýningar í tilefni af 16 daga átaki gegn kynbundnu ofbeldi. Í lok sýningarinnar voru umræður undir stjórn Magnúsar Geirs Þórðarsonar, leikhússtjóra LA, og Kristínar Ástgeirsdóttur, framkvæmdastýru Jafnréttisstofu. Þátttakendur í umræðunni voru María Reyndal leikstjóri, leikhópur leiksýningarinnar, Sigrún Sigurðardóttir hjúkrunarfræðingur, starfskonur Aflins og leikhúsgestir.

Kynbundinn launamunur - Aðferðir til úrbóta

Jafnréttisstofa í samstarfi við Evrópuár jafnra tækifæra og félagsmálaráðuneytið efnir til málþings um kynbundinn launamun og aðferðir til úrbóta, þann 17. desember kl. 12-13:15 á Hótel KEA.

Kvennaathvarfið 25 ára

Fimmtudaginn 6. desember eru liðin 25 ár frá því að Kvennaathvarfið opnaði. Í tilefni af því býður Kvennaathvarfið til sigurhátíðar í Tjarnarsal Ráðhúss Reykjavíkur og verður dagskráin tileinkuð konunum sem brotist hafa út úr ofbeldissamböndum. Reynt verður að varpa ljósi á lífið í athvarfinu með minningarbrotum starfskvenna og dvalarkvenna í gegn um tíðina auk þess sem sýnt verður brot úr kynningarmyndbandi um Kvennaathvarfið sem verið er að vinna.

Ný og endurbætt heimasíða Jafnréttisstofu opnuð

Undanfarna mánuði hefur starfsfólk Jafnréttisstofu unnið að því að endurskoða og endurbæta heimasíðu stofunnar. Unnið var að því að breyta og lagfæra útlit síðunnar með það í huga að tryggja notendavænna umhverfi. Til þess að tryggja betra aðgengi notenda voru aðgengismál fyrir sjónskerta uppfærð og nú er einnig hægt að senda okkur tölvupóst með því að velja ,,Hafa samband” hnappinn ofarlega á síðunni. Til þess að tryggja greiðari aðgang að öllu efni síðunnar voru allir málaflokkar endurskipulagðir og uppfærðir.

Aukasýning á Ökutímum

Í tengslum við 16 daga átak gegn kynbundnu ofbeldi efna Leikfélag Akureyrar og Jafnréttisstofa til sérstakrar aukasýningar á leikritinu Ökutímum eftir Paula Vogel sunnudaginn 9. des. kl. 20.00. Á eftir verða umræður sérfræðinga, leikhússfólks og áhorfenda. Sýningar á Ökutímum hafa staðið frá því í byrjun nóvember og hafa vakið mikla athygli og sterk viðbrögð. Uppselt hefur verið á allar sýningar til þessa.

Erindi á ráðstefnunni Kynbundinn launamunur – Aðferðir til úrbóta

Föstudaginn 23. nóvember síðastliðinn var haldin ráðstefnan Kynbundinn launamunur - Aðferðir til úrbóta. Vegna fjölda fyrirspurna hefur verið ákveðið að birta erindin á heimasíðunni.