Fréttir

Húsfyllir á hádegisfundi á kvennafrídaginn á Seyðisfirði

Á sjötta tug kvenna sótti hádegisverðarfund á Seyðisfirði sem haldinn var í tilefni kvennafrídagsins þann 24. október sl.. Skipuleggjandi viðburðarins segir enn töluvert óunnið í jafnréttisbaráttunni þótt jafnrétti eigi að vera bundið í lög.

Kynferðisleg áreitni er ótrúlega algeng

Mikið fjölmenni var á hádegisfundi sem Jafnréttisstofa stóð fyrir, í samstarfi við Akureyrarbæ, í tilefni kvennafrídagsins 24. október. Á fundinum, sem bar yfirskriftina öryggi kvenna í þjónustustörfum, var fjallað um kynbundna og kynferðislega áreitni í þjónustustörfum.  

Ráðstefna um jafnrétti á norðurslóðum

Utanríkisráðuneytið, Jafnréttisstofa, Stofnun Vilhjálms Stefánssonar, Norðurslóðanet Íslands og Norræna ráðherranefndin bjóða til alþjóðlegrar ráðstefnu um jafnréttismál á norðurslóðum á Akureyri dagana 30.-31. október næstkomandi. [For English] Á ráðstefnunni verða aðstæður kvenna og karla á norðurheimskautssvæðinu skoðaðar í víðum skilningi og athyglinni m.a. beint að aðgangi og yfirráðum auðlinda, þátttöku kynjanna í ákvarðanatöku og stjórnmálum, byggðaþróun, öryggi og almennri velferð. Tilgangurinn er að stuðla að víðtækri, markvissri samræðu um jafnréttismál samtímans og beina um leið sjónum að áskorunum sem framtíðin kann að bera í skauti sér m.t.t. þeirra loftslags- og umhverfisbreytinga sem eru að verða og í samhengi við efnahags- og félagslega þróun ríkja og samfélaga á norðurslóðum.

Ályktun Jafnréttisráðs um kynbundinn launamun

Í tilefndi dagsins sendir Jafnréttisráð frá sér eftirfarandi ályktun: Jafnréttisráð samþykkti á fundi sínum 8. október sl. að hvetja alla þá sem koma að kjaramálum að leggja sig fram um að uppræta kynbundinn launamun og sætta sig ekki við óbreytt ástand.

Skýrsla Jafnréttisstofu um nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneytanna 2013

Komin er út skýrsla Jafnréttisstofu um nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneytanna. Í skýrslunni er að finna greiningu á skiptingu kynjanna í nefndum, stjórnum og ráðum á starfsárinu 2013 auk þess sem farið er yfir þróun síðustu ára. Árið 2008 var leiddur í lög kynjakvóti í nefndum, stjórnum og ráðum á vegum ríkisins og hefur Jafnréttisstofa haft eftirlit með framkvæmd hans.

Opinn fundur kvennafrídaginn 24. október

Þann 24. október næstkomandi mun Jafnréttisstofa, í samstarfi við Akureyrarbæ, standa að opnum fundi um stöðu kvenna í umönnunar- og þjónustustörfum með sérstaka áherslu á kynbundna og kynferðislega áreitni. 

Kyn og fræði - ný þekking verður til

Forsætisráðherra mun úthluta styrkjum til rannsókna á sviði jafnréttismála úr Jafnréttissjóði á degi Sameinuðu þjóðanna, 24. október næstkomandi á morgunverðarmálþingi á Grand Hótel Reykjavík við Sigtún. Styrkirnir eru fjórir og eru samtals að upphæð 8,6 mkr.

Styttra á milli Akureyrar og Kópavogs en Kópavogs og Kópavogs

Í gær var styttra milli Akureyrar og Kópavogs en Kópavogs og Kópavogs. Þetta fékk Arnfríður Aðalsteinsdóttir, sérfræðingur á Jafnréttisstofu, að reyna. Hún brá sér af bæ og hitti leikskólastjóra í Kópavogi. Á meðan það tók leikskólastjóra, búsetta í Kópavogi, tvo klukkutíma að komast á Bæjarskrifstofur Kópavogs tók sama ferðalag frá Akureyri ekki nema klukkutíma. Ferðalagið var engu að síður vel þess virði og leikskólastjórar fengu fræðslu um staðalmyndir kynjanna og tilgang jafnréttisáætlana í skólastarfi. Leikskólar Kópavogsbæjar búa svo vel að til er metnaðarfull jafnréttisstefna fyrir skólana sem einungis þarf að endurskoða og uppfæra. Í framhaldinu mun síðan hver skóli fyrir sig setja sér sína eigin aðgerðaáætlun. Sjá frétt um færð í Kópavogi

Súpufundur á Seyðisfirði Kvennafrídaginn 24. október 2014

Á kvennafrídaginn, föstudaginn 24. október, mun Seyðisfjarðarkaupstaður standa fyrir hádegisverðarfundi á Hótel Öldu, Seyðisfirði. Húsið opnar kl. 11:50 og dagskráin hefst kl. 12.10. Gestum er boðið að kaupa súpu meðan á dagskrá stendur. Frummælendur á fundinum eru Tinna Halldórsdóttir, Benedikta Guðrún Svavarsdóttir, Hanna Christel Sigurkarlsdóttir, Guðrún Veiga Guðmundsdóttir, Erna Rut Rúnarsdóttir og Gunnhildur Eldjárnsdóttir.  Í frétt á vefsíðu sveitarfélagsins segir að í tilefni dagsins muni Seyðisfjarðarkaupstaður veita konum frí frá klukkan 11.50.

Karlar tregari til svara...

"Svör bárust síður frá körlum en konum" sögðu þær Eva Björk Jónudóttir jafnréttisfulltrúi Seyðisfjarðarkaupsstaðar og Sigurveig Gísladóttir fulltrúi velferðarnefndar, nefndarinnar sem fer með jafnréttismál sveitarfélagsins. Þetta kom fram á fundi sem Jafnréttisstofa átti með þeim Evu Björk og Sigurveigu á ferð sinni um Austurland í byrjun október. Á fundinum kynntu Eva og Sigurveig m.a. könnun sem lögð hafði verið fyrir starfsfólk Seyðisfjarðarkaupstaðar. Í könnuninni voru jafnréttismál, launamál, einelti og kynferðisleg áreitni skoðuð.