Fréttir

Staðall búinn til um launajafnrétti kynjanna

Félags- og tryggingamálaráðherra, Alþýðusamband Íslands og Samtök atvinnulífsins hafa farið þess á leit við Staðlaráð Íslands að það hafi umsjón með gerð staðals sem notaður verði til að sannreyna hvort launa- og starfsmannastefna stofnana og fyrirtækja samræmist stefnu um launajafnrétti kynja og jafnrétti við ráðningar og uppsagnir.

Fyrirlestur um mannlegt öryggi á norðlægum slóðum

Félagsvísindatorg Háskólans á Akureyri og minningarfyrirlestur Vilhjálms Stefánssonar 2008 verða haldin sameiginlega miðvikudaginn 29. október.  Fyrirlesari verður Dr Gunhild Hoogensen, dósent við stjórnmálafræðideild Háskólans í Tromsö.    

Alcoa Fjarðaál hlaut jafnréttisviðurkenningu

Alcoa Fjarðaál hlaut í dag árlega viðurkenningu Jafnréttisráðs fyrir störf sín í á sviði jafnréttismála. Jóhanna Sigurðardóttir, félags- og tryggingamálaráðherra, afhenti verðlaunin. Í ávarpi sem hún flutti við þetta tækifæri sagði hún meðal annars að árangurinn af jafnréttisstefnu fyrirtækisins væri sá að 28% af 450 starfsmönnum væru konur, 34% í framleiðslustörfum og 27% í framkvæmdastjórn. „Þetta er besti árangur í jafnréttismálum sem náðst hefur innan Alcoa samsteypunnar og líkur á að um heimsmet í áliðnaðinum sé að ræða.“

Úthlutun styrkja úr Jafnréttissjóði og jafnréttisviðurkenning

Jafnréttissjóður og Jafnréttisráð efna til sameiginlegrar athafnar föstudaginn 24. október nk. kl. 15 í Rúgbrauðsgerðinni, Borgartúni 6, þar sem veittir verða fimm styrkir til rannsókna á sviði jafnréttismála og jafnréttisviðurkenning Jafnréttisráðs verður afhent. Við sama tækifæri verða rannsóknarniðurstöður fimm styrkþega ársins 2007 kynntar.

Jafnréttisþingi frestað

Félags- og tryggingamálaráðuneytið hefur ákveðið að fresta Jafnréttisþingi, sem halda átti þann 7. nóvember nk. Þinginu er frestað fram í janúar á næsta ári.

Kynjasjónarmið verði höfð að leiðarljósi við enduruppbyggingu samfélagsins

Á fundi sínum hinn 14. október sl. samþykkti Jafnréttisráð eftirfarandi ályktun:Á tímum gríðarlegra efnahagshamfara hér á landi minnir Jafnréttisráð á að óhjákvæmilega munu verða miklar þjóðfélagsbreytingar. Breytingar fela í sér tækifæri til umbóta og til þeirra þarf að vanda. Kynjasjónarmið þarf að hafa að öflugu leiðarljósi þegar mótuð verður atvinnustefna framtíðarinnar.

Áhugaverðar greinar og umræða

Jafnréttisstofa hefur tekið í notkun nýtt greinarkerfi fyrir heimasíðu stofunnar, þar sem birtar verða vikulegar greinar tengdar jafnréttismálum. Greinarnar verða bæði skrifaðar af starfsmönnum stofunnar og gestapennum. Kristín Ástgeirsdóttir, framkvæmdastýra Jafnréttisstofu, skrifaði fyrstu greinina um jafnrétti í skólum. Grein vikunnar er hins vegar eftir Jóhannes Sigurjónsson, ritstjóra héraðsfréttablaðsins Skarps á Húsavík, og nefnist hún: Er fyndið að nauðga karlmönnum?

Eru sveitarfélögin að standa sig í jafnréttismálum?

Jafnréttisstofa stendur fyrir málþingi um stöðu jafnréttismála hjá sveitarfélögum, miðvikudaginn 9. apríl kl. 12:00 – 13:15 á Hótel KEA. Kynntar verða íslenskar niðurstöður Jafnréttisvogarinnar, Evrópuverkefnis sem er nýlokið, en þar var staða jafnréttismála mæld hjá sveitarfélögum í fimm löndum.

Staða kynjanna jöfnust hjá Akureyrarbæ

Akureyrarbær er það sveitarfélag á Íslandi þar sem staða kynjanna er hvað jöfnust, samkvæmt niðurstöðum Jafnréttisvogarinnar, Evrópuverkefnis sem stýrt var af Jafnréttisstofu. Þetta kom fram á málþingi sem Jafnréttisstofa stóð fyrir á Hótel KEA í hádeginu í dag.

Krefjast þess að Fjármálaeftirlitið fari að jafnréttislögum

Stjórn Kvenréttindafélags Íslands hefur sent frá sér ályktun þar sem félagið krefst þess að Fjármálaeftirlitið fari að jafnréttislögum, en aðeins tvær konur eru á meðal þeirra sem skipaðir hafa verið í skilanefndir vegna yfirtöku ríkisins á fjármálastofnunum. Jafnframt fagnar félagið ráðningu á konu í starf bankastjóra Landsbankans.