Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga fór fram á Hvolsvelli 27. september sl. Dagskrá fundarins var mjög áhugaverð og fjölbreytt en 37 fulltrúar sveitarfélaga tóku þátt í landsfundinum að þessu sinni.
Almenn ánægja var með fundinn og mikil samstaða um brýnustu mál framundan. Rík áhersla var meðal þátttakenda á mikilvægi þess að jafnréttisfulltrúar væru ráðnir til að vinna að jafnréttismálum innan sveitarfélaga en á síðustu árum hafa jafnréttismálin gjarnan verið færð til mannauðs- og félagsmálastjóra og vilja þau því týnast vegna anna og álags í þeim störfum. Sú tillaga kom fram að starfshlutfall jafnréttisfulltrúa verði í beinu samræmi við íbúafjölda sveitarfélaga. Fulltrúar sveitarfélaga fjölluðu einnig um mikilvægi sveigjanleika á vinnustöðum til að stuðla að aukinni samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs og mikilvægi þess að í sveitarstjórnum sitji bæði konur og karlar sem endurspegla það samfélag sem þau starfa fyrir.
08.10.2013
Þann 3. október var haldið fjölmennt málþing um kynferðisofbeldi gegn fötluðu fólki. Að málþinginu stóðu: Stígamót, Rannsóknasetur í fötlunarfræðum, Landssamtökin Þroskahjálp, NPA miðstöðin, Öryrkjabandalag Íslands, Kvennaathvarfið, Reykjavíkurborg, Jafnréttisstofa, Velferðarráðuneytið, Þroskaþjálfafélag Íslands, Mannréttindaskrifstofa Íslands og Ás styrktarfélag. Þessir aðilar sendu frá sér eftirfarandi yfirlýsingu í kjölfar málþingsins auk þess sem glærur af málþinginu eru nú aðgengilegar.
08.10.2013
Miðvikudaginn 2. október kl. 12.00-13.00 flytur Kristín Ástgeirsdóttir sagnfræðingur og fyrrverandi þingkona Kvennalistans erindið „Öll mál eru kvennamál“ - Kvennalistinn og áhrif hans 1983-1999 á félagsvísindatorgi í stofu M102.
01.10.2013
Vitundarvakning um kynferðislegt, andlegt og líkamlegt ofbeldi gegn börnum stendur fyrir fræðsluþingum víða um land í október 2013. Þingin eru hugsuð fyrir stjórnendur, kennara og annað starfsfólk grunn- og framhaldsskóla. Einnig eru hvattir til að mæta; forvarnarfulltrúar, náms- og starfsráðgjafar, þeir sem starfa við íþrótta-og æskulýðsmál, barnavernd, heilsugæslu og félagsþjónustu að ógleymdum sveitarstjórnum og löggæslu. Vitundavakning leggur áherslu á að fræða þá sem vinna með börnum um eðli og afleiðingar kynferðislegs, andlegs og líkamlegs ofbeldis, svo allir séu í stakk búnir til að bregðast við, ef börn sýna þess merki að hafa orðið fyrir ofbeldi.
30.09.2013
Út er komin skýrsla Jafnréttisstofu um nefndir, ráð og stjórnir á vegum ráðuneytanna. Í skýrslunni er að finna greiningu á kynjaskiptingu í nefndum, stjórnum og ráðum á starfsárinu 2011 og 2012. Árið 2008 var leiddur í lög kynjakvóti í nefndum, stjórnum og ráðum á vegum ríkisins og hefur Jafnréttisstofa haft eftirlit með framkvæmd hans. Kynjakvótinn, sem kveðið er á um í 15 grein laga nr. 10/2008, gerir ráð fyrir að hlutur hvors kyns um sig skuli ekki vera minni en 40% nema hlutlægar ástæður heimili annað.
24.09.2013
Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga verður haldinn á Hvolsvelli þann 27. september nk. Dagskrá fundarins er mjög spennandi og fjölbreytt og eru fulltrúar sveitarfélaga sem starfa að jafnréttis- og félagsmálum hvattir til að mæta á fundinn.
Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga er kjörinn vettvangur fyrir fólk sem vinnur að jafnréttismálum innan sveitarfélaga til að koma saman og ræða helstu þætti jafnréttisstarfsins og kynna sér hvað er efst á baugi í öðrum sveitarfélögum. Landsfundurinn er opinn fulltrúum í jafnréttisnefndum sveitarfélaga, en einnig eru velkomnir á fundinn fulltrúar þeirra sveitarstjórna sem ekki hafa skipað jafnréttisnefndir sem og stjórnmálamenn og aðrir starfmenn sveitarfélaganna.
Dagskrá landsfundarins
24.09.2013
Fjárlaganefnd Alþingis heimsótti Jafnréttisstofu í vikunni en nefndin heimsækir þessa dagana fjölmargar opinberar stofnanir á Akureyri. Starfsfólk Jafnréttisstofu kynnti starfsemi stofnunarinnar og urðu góðar umræður.
20.09.2013
Ársskýrsla Jafnréttisstofu um starfsárið 2012 er nú komin út. Í henni má finna yfirlit yfir helstu verkefni Jafnréttisstofu og þær áherslur sem lagðar voru í jafnréttismálum á umræddu tímabili. Starfsemi Jafnréttisstofu er margþætt og verkefni sem unnin voru á hennar vegum á árinu sýna það glöggt. Í byrjun árs gaf Jafnréttisstofa út bæklinginn Gender Equality in Iceland sem gefur góða mynd af jafnréttismálum á Íslandi og hefur bæklingnum verið mjög vel tekið. Jafnréttisstofa gaf einnig út bæklinginn Kynjakrónur í samstarfi við Fjármálaráðuneytið og stóð fyrir námskeiðum víða um land um kynjasamþættingu og gerð jafnréttisáætlana. Jafnréttisstofa hélt einnig ráðstefnur í samstarfi við ýmsa aðila og kallaði inn jafnréttisáætlanir frá framhaldsskólum og opinberum stofnunum svo eitthvað sé nefnt.
Ársskýrsla Jafnréttisstofu 2012
17.09.2013
Málþing um kynferðisofbeldi gegn fötluðu fólki mun fara fram á Grand Hóteli Reykjavík fimmtudaginn 3. október kl. 13.00-17.00.
Málþingið er haldið af Velferðarráðuneytinu, Háskóla Íslands, Reykjavíkurborg, Öryrkjabandalagi Íslands, Jafnréttisstofu, Mannréttindaskrifstofu Íslands, Ás-styrktarfélagi, Landssamtökunum Þroskahjálp, Stígamótum, Kvennaathvarfinu, NPA miðstöðinni og Þroskaþjálfafélagi Íslands. Um er að ræða opið málþing og er aðgangur ókeypis.
Rit- og tálknmálstúlkar verða á staðnum.
Skráning fer fram á slóðinni: www.throskahjalp.is
16.09.2013
Þann 1. september 2013 tóku gildi lög sem kveða á um að hlutfall hvors kyns sé að lágmarki 40% í stjórnum lífeyrissjóða, einkahlutafélaga, hlutafélaga, samlagshlutafélaga, opinberra hlutafélaga þar sem starfa fleiri en 50 starfsmenn á ársgrundvelli.
KPMG hefur undanfarin ár tekið saman upplýsingar um kynjahlutfall stjórnarmanna hjá lífeyrissjóðum. Samanburðurinn leiðir í ljós að heildarhlutfall kvenna í stjórnum lífeyrissjóða er nú 44,4% og hefur aukist um 18,4% prósentustig frá árinu 2010.
13.09.2013