Kynjajafnréttisstefna fyrir árin 2024 til 2029 var samþykkt á fundi ráðherranefndar Evrópuráðsins þann 6. mars 2024 og byggir á skuldbindingum aðildaríkja Evrópuráðsins, tilmælum og leiðbeiningum varðandi kynjajafnréttismál. Stefnan hefur tekið gildi.
02.05.2024
Sjötta útgáfa herferðarinnar Sjúkást er farin í loftið en fyrsta herferðin fór af stað árið 2018.
02.04.2024
Sexan er stuttmyndakeppni sem haldin er í janúar til febrúar ár hvert þar sem markmiðið er að ungt fólk fræði ungt fólk um birtingarmyndir stafræns ofbeldis og eru viðfangsefnin: samþykki, nektarmyndir, tæling, og slagsmál ungmenna.
22.02.2024
Nýlega kom út stutt fræðslumyndband um helstu einkenni vinnumansals.
14.02.2024
Jafnréttisstofa hleypir af stokkunum herferðinni Orðin okkar til að hvetja fólk til umhugsunar um áhrifamátt orða sinna.
31.01.2024
Opnað hefur verið fyrir innsendingar í Sexuna, stuttmyndakeppni fyrir nemendur í 7. bekk á landsvísu.
09.01.2024
Merki jafnlaunastaðfestingar verður nú veitt þeim fyrirtækjum sem hafa öðlast staðfestingu samkvæmt lögum um jafna stöðu og jafnan rétt kynjanna nr. 150/2020.
05.12.2023
Í byggðaáætlun er nú samstarfsverkefni með það markmið að efla sveitarstjórnir og skapa aukna vitund um mikilvægi fjölbreyttra sjónarmiða innan þeirra.
04.12.2023
Barna- og fjölskyldustofa hefur hannað og framleitt ný rafræn námskeið um kynferðisofbeldi gagnvart börnum sem nú eru aðgengileg á heimasíðu stofnunarinnar. Námskeiðin, sem ætluð öllum þeim sem koma að starfi með börnum upp að 18 ára aldri, eru afrakstur aðgerða í þingsályktun um forvarnir meðal barna og ungmenna gegn kynferðislegu og kynbundnu ofbeldi og áreitni, ásamt áætlun um aðgerðir fyrir árin 2021–2025 (forvarnaráætlun), þar sem megináherslan er lögð á að efla aldursmiðaða kennslu og forvarnir í leikskólum, grunnskólum og framhaldsskólum, í samvinnu við heilsugæslu, frístundaheimili og félagsmiðstöðvar.
24.11.2023
Allnokkur sveitarfélög eru með í bígerð að breyta útfærslum á dvalartíma barna í leikskólum og gjaldskrám þeim tengdum og því hefur Jafnréttisstofa sent bréf til sveitarfélaganna þar sem þau eru minnt á skylduna til að samþætta kynja- og jafnréttissjónarmið við ákvarðanatöku.
14.11.2023