Fréttir

Fimm styrkir veittir úr Jafnréttissjóði

Á kvennafrídaginn 24. október, var úthlutað styrkjum úr Jafnréttissjóði á málþingi sjóðsins þar sem jafnframt var gerð grein fyrir rannsóknum sem sjóðurinn styrkti á liðnu ári.

Jafnréttisþing

Í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla boða félags- og húsnæðismálaráðherra og Jafnréttisráð til jafnrétttisþings 1. nóvember, 2013 að Hilton Reykjavík Nordica hótel á Suðurlandsbraut frá kl. 9:00-17:00. Hlutverk þingsins er að efna til samræðu milli stjórnvalda og þjóðar um málefni kynjajafnréttis og gefa öllum áhugasömum kost á að hafa áhrif á stefnu stjórnvalda í jafnréttismálum.    Fjallað verður um fjölmargar hliðar jafnréttismála en megináhersla þingsins er að þessu sinni á jafnrétti á vinnumarkaði. Þingið er öllum opið og aðgangur er ókeypis. Dagskrá jafnréttisþings  Skráning á þingið 

Fjölguðu körlum í umönnunarstörfum umtalsvert

Hátt í hundrað manns sóttu hádegisfund á Akureyri í tilefni Kvennafrídagsins sem haldinn var hátíðlegur víða um land þann 24. október. Fundurinn sem bar yfirskriftina Rjúfum hefðirnar – förum nýjar leiðir var helgaður kynbundnu  náms- og starfsvali og kynskiptum vinnumarkaði sem er ein helsta orsök kynbundins launamunar.

Jafnréttisvika 24. október – 1. nóvember 2013

Í samræmi við lög um jafna stöðu og jafnan rétt kvenna og karla boða félags- og húsnæðismálaráðherra og Jafnréttisráð til jafnréttisþings 1. nóvember næstkomandi. Vikan fyrir þingið, 24. – 31. október, verður helguð jafnréttismálum og er henni ætlað að slá taktinn fyrir jafnréttisþingið. Áskorun var send á fjölmiðla, aðila vinnumarkaðarins, sveitarfélög og fleiri um að vekja sérstaka athygli á jafnrétti kynjanna þessa viku. Jafnréttisstofa mun fylgjast með og birta fréttir á heimasíðunni.  

BSRB boðar til morgunverðarfundar um kynskiptan vinnumarkað

Í tilefni af jafnréttisviku boðar BSRB til morgunverðarfundar fimmtudaginn 31. október. Á fundinum mun Finnborg Salóme Steinþórsdóttir MA-nemi í kynjafræði fjalla um stöðu lögreglukvenna og vinnumenningu innan lögreglunnar. Erindi hennar byggir á nýútkominni skýrslu sem hún vann í samstarfi við embætti Ríkislögreglustjóra. Einnig mun Gyða Margrét Pétursdóttir lektor í kynjafræði við Háskóla Íslands fjalla um kynskiptan vinnumarkað, helstu orsakir, afleiðingar og möguleg viðbrögð stéttarfélaga við þeirri þróun. Morgunverðarfundurinn sem hefst kl. 8:45 verður haldinn í fundarsal 1. hæðar Grettisgötu 89. Fundurinn er öllum opinn og aðgangur er ókeypis. Þátttakendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig með tölvupósti. Upplýsingar um morgunverðarfundinn og skráningu má nálgast hér

Jafnréttissjóður boðar til málþings 24. október

Kyn og fræði: Ný þekking verður til er yfirskrift málþings sem Jafnréttissjóður boðar til kvennafrídaginn 24. október n.k. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra og Eygló Harðardóttir félags- og húsnæðismálaráðherra munu ávarpa þingið.

Rjúfum hefðirnar – förum nýjar leiðir

Kvennafrídaginn, 24. október n.k., boðar Jafnréttisstofa í samstarfi við Akureyrarbæ til hádegisfundar undir yfirskriftinni Rjúfum hefðirnar – förum nýjar leiðir. Fundurinn, sem haldinn verður á Hótel KEA, verður helgaður kynbundnu náms- og starfsvali og kynskiptum vinnumarkaði.

Kynjasamþætting og staðalímyndir í félagsstarfi aldraðra á Akureyri

Haustið 2012 var fræðsla á vegum Jafnréttisstofu fyrir stjórnendur Akureyrarbæjar um kynjasamþættingu og staðalímyndir. Í framhaldi af fræðslunni var skipaður starfshópur stjórnenda sem fór í ýmis verkefni á sínum vinnustað. Stjórnendahópurinn hefur hist reglulega á fundum þar sem jafnréttisfulltrúi Akureyrarbæjar, Katrín Björk Ríkharðsdóttir hefur stýrt þeim og fengið fulltrúa frá Jafnréttisstofu til að mæta eftir þörfum á fundina.

Alþjóðlegur dagur stúlkubarnsins

Fyrir ári síðan var í fyrsta sinn haldið upp á alþjóðlegan dag stúlkubarnsins sem haldinn er 11. október að frumkvæði Sameinuðu þjóðanna. Þessi mikilvægi dagur á sér alllangan aðdraganda.  

Góður og gagnlegur landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga 2013

Landsfundur jafnréttisnefnda sveitarfélaga fór fram á Hvolsvelli 27. september sl. Dagskrá fundarins var mjög áhugaverð og fjölbreytt en 37 fulltrúar sveitarfélaga tóku þátt í landsfundinum að þessu sinni. Almenn ánægja var með fundinn og mikil samstaða um brýnustu mál framundan. Rík áhersla var meðal þátttakenda á mikilvægi þess að jafnréttisfulltrúar væru ráðnir til að vinna að jafnréttismálum innan sveitarfélaga en á síðustu árum hafa jafnréttismálin gjarnan verið færð til mannauðs- og félagsmálastjóra og vilja þau því týnast vegna anna og álags í þeim störfum. Sú tillaga kom fram að  starfshlutfall  jafnréttisfulltrúa verði í beinu samræmi við íbúafjölda sveitarfélaga.  Fulltrúar sveitarfélaga fjölluðu einnig um mikilvægi sveigjanleika á vinnustöðum til að stuðla að aukinni samræmingu fjölskyldu- og atvinnulífs og mikilvægi þess að í sveitarstjórnum sitji bæði konur og karlar sem endurspegla það samfélag sem þau starfa fyrir.