Fréttir

Úthlutun styrkja úr Jafnréttissjóði Íslands

Á kvenréttindadaginn þann 19. júní afhenti Eygló Harðardóttir, félags og húsnæðismálaráðherra styrki  úr Jafnréttissjóði Íslands. Tæplega 100 milljónir króna voru til úthlutunar úr sjóðnum sem stofnaður var í fyrra í tilefni af 100 ára afmæli kosningaréttar kvenna. Alls bárust 142 umsóknir en 42 umsækjendur hlutu styrk. Jafnréttisstofa var meðal þeirra sem hlutu styrk fyrir verkefnið „Rjúfum hefðirnar – förum nýjar leiðir“ sem miðar að því að vinna gegn neikvæðum staðalmyndum um hlutverk kvenna og karla í námi og starfi.  

Dagskrá á kvenréttindadaginn 19. júní

Kvenréttindadagurinn 19. júní verður haldinn hátíðlegur í Reykjavík og á Akureyri.  Í Reykjavík verður lagður blómsveigur frá Reykvíkingum að leiði baráttukonunnar Bríetar Bjarnhéðinsdóttur klukkan 14:30. Að athöfn lokinni verður gengið að Hallveigarstöðum þar sem félög kvenna  bjóða til kaffisamsætis kl. 15:00. Í ár er fundurinn helgaður forsetakosningunum og eru gestir fundarins konur í framboði til embættis forseta Íslands. Á Akureyri hefst kvennasöguganga klukkan 11:00. Aað þessu sinni verður gengið  í fótspor kvenna sem settu svip á Brekkuna en lagt er af stað frá Lystsigarðinum.

Fyrirlestur Ruth Rubio-Maríon

Jafnréttisstofa birtir í dag fyrirlestur spænska lagaprófessorsins Ruth Rubio-Marín, í íslenskri þýðingu Ingunnar Sigríðar Árnadóttur, sem nú er að ljúka meistaraprófi í lögfræði.  Fyrirlesturinn var haldinn þann 6. maí síðastliðinn, sem inngangsræða á ráðstefnunni Konur í Evrópu og umheiminum (Women in Europe and in the World) og fjallar um birtingarmyndir kúgunar kvenna í Evrópu. Umræðan tekur sérstaklega fyrir ofbeldi gegn konum, misneytingu og jaðarsetningu, valdaleysi ásamt því að ræða tengsl jafnréttis og menningarlegrar heimsvaldastefnu.  Ruth Rubio-Maríon telur að umræða um jafnréttismál standi á tímamótum og segir að ef ekki verði tekist á við þau málefni sem tengjst lýðræði og stöðu kvenna, geti það haft alvarlegar afleiðingar á samfélagsþróun í Evrópu.  Fyrirlesturinn birtist nú í dag á fjölmörgum tungumálum, víða í Evrópu – enda athyglisvert innlegg í umræðu um stöðu kynjanna (Sjá: Hér)

Kvennasöguganga á Akureyri 19. júní

Sunnudaginn 19. júní n.k. býður Jafnréttisstofa til kvennasögugöngu á Akureyri  í samstarfi við Héraðsskjalasafnið, Minjasafnið, Akureyrarbæ og  Zontaklúbbana á Akureyri. Gengið verður í fótspor kvenna sem settu svip á Brekkuna. Kristín Aðalsteinsdóttir prófessor leiðir gönguna sem hefst í Lystsigarðinum klukkan 11:00. Göngufólk mæti á flötina við Café Laut.

Samráðshópur um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins skilar ráðherra tillögum

Samráðshópur um meðferð kynferðisbrota innan réttarvörslukerfisins sem innanríkisráðherra skipaði í mars 2016 hefur skilað ráðherra fyrstu tillögum um aðgerðir á þessu sviði. Hópnum var falið að kortleggja stöðu mála í dag, skilgreina styrkleika og tækifæri og leggja fram aðgerðaáætlun sem miði meðal annars að því að tryggja réttaröryggi, tryggja vandaða málsmeðferð og auka traust til réttarvörslukerfisins. Gert er ráð fyrir að samráðshópurinn starfi áfram að verkefninu og að fullmótuð aðgerðaráætlun verði tilbúin í haust.

Opinn fundur um stöðu mannréttinda á Íslandi

Fjallað verður um undirbúning skýrslu um stöðu mannréttindamála á Íslandi á opnum fundi á vegum innanríkisráðuneytisins næstkomandi þriðjudag, 7. júní. Fundurinn fer fram í Iðnó í Reykjavík á milli klukkan 9 og 12, og er öllum opinn. Vinnuhópur á vegum innanríkisráðuneytis, mennta- og menningarmálaráðuneytis, velferðarráðuneytis, umhverfis- og auðlindaráðuneytis og utanríkisráðuneytis hefur að undanförnu unnið að skýrslu um stöðu mannréttindamála á Íslandi. Um er að ræða reglubundna athugun Sameinuðu þjóðanna á stöðu mannréttinda í svokölluðu Universal Periodic Review (UPR) og er þetta í annað skiptið sem slík athugun fer fram hér á landi en sú fyrsta fór fram árið 2011.

Formennskuáætlun Finnlands í Norrænu ráðherranefndinni

Finnland fer með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2016. Aðal áherslan í formennskuáætlun Finnlands er á  vatn, náttúru og fólk. Í norræna samstarfinu um jafnréttismál leggur Finnland áherslu á að vinna gegn kynbundnu ofbeldi, stuðla að jafnrétti kynjanna í fjölmiðlum og kynjasjónarmið í heilsuvernd. Þessar áherslur eru í samræmi við samstarfsáætlun jafnréttisráðherranna 2015-2018 sem ber titilinn „Saman fyrir jafnrétti“. Finnarnir leggja jafnframt áherslu á þverfaglegt samstarf innan ráðherranefndarinnar.

Vinnustofur um gerð jafnréttisáætlana

Jafnréttisstofa heimsótti Kaupfélag Skagfirðinga, fimmtudaginn 26. maí sl. með fræðslu um jafnréttislög og gerð jafnréttisáætlana. Stjórnendur og starfsfólk ýmissa deilda vann í hópum þar sem hafist var handa við gerð aðgerðabundinnar jafnréttisáætlunar fyrir Kaupfélagið. Mánudaginn 30. apríl var Jafnréttisstofa með samskonar fræðslu fyrir Farfugla sem nú eru í viðamikilli vinnu við að móta stefnu og framtíðarsýn fyrir fyrirtækið. Einn liður í þeirri vinnu er að fyrirtækið setji sér aðgerðabundna jafnréttisáætlun.

Jafnréttisviðurkenning Jafnréttisráðs

Í dag afhenti Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, jafnréttisviðurkenningu Jafnréttisráðs. Að þessu sinni voru það tveir aðilar sem hlutu viðurkenninguna, Samtök um Kvennaathvarf og Reykjavíkurborg. 

Tillaga að framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum lögð fyrir Alþingi

Eygló Harðardóttir, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur lagt fram á Alþingi tillögu til þingsályktunar um framkvæmdaáætlun í jafnréttismálum tilfjögurra ára . Þetta er í sjötta sinn sem slík áætlun er lögð fram en markmið hennar er að tilgreina þau verkefni sem brýnust eru talin á sviði kynjajafnréttis.