Fréttir

Lokaráðstefna Jafnréttiskennitölunnar 19. september

Lokaráðstefna verkefnisins um jafnréttiskennitöluna verður haldin þann 19. september næstkomandi. Yfirskrift ráðstefnunar er nýting mannauðs í stjórnun og æðstu stjórnunarstöðum fyrirtækja og er hún haldin í Salnum í Kópavogi þann 19. september næstkomandi. Aðalfyrirlesari verður Eleanor Tabi Haller-Jorden framkvæmdastjóri Catalyst í Evrópu, leiðandi fyrirtækis á sviði jafnréttis og viðskipta. Ráðstefnan er liður í afmælisdagskrá Háskólans á Bifröst á 90. ára afmælisári hans.

Ráðstefna um vændi á Norðurlöndunum - Skráningafrestur 22. ágúst

Ráðstefna um norræna rannsóknarverkefnið "Vændi á Norðurlöndunum" verður haldin 16. og 17. október 2008 í Stokkhólmi. Á ráðstefnunni verður reynt að svara ýmsum spurningum um útbreiðslu og birtingarmyndir vændis og mansals á Norðurlöndum. Einnig verður skoðað hvaða viðhorf fólk á Norðurlöndunum hefur til vændis, hvernig tekið er á vændi réttarfarslega séð og er einhver munur á félagslegum úrræðum á Norðurlöndunum hvað varðar vændi og mansal.

Segjum nei við ofbeldi - Nýtt átak á vegum UNIFEM á Íslandi

Undirskriftaátakið Segjum NEI við ofbeldi gegn konum var opnað á heimasíðu UNIFEM á Íslandi í dag. Utanríkisráðherra, samgönguráðherra og heilbrigðisráðherra undirrituðu áskorunina fyrir hönd ríkisstjórnarinnar að viðstöddum fjölmiðlum. Átakið er hvatning til ríkisstjórna heims að grípa til aðgerða til að binda endi á ofbeldi gegn konum. Allir Íslendingar eru hvattir til þess að skrifa undir.

Jafnréttissjóður auglýsir eftir umsóknum

Starfræktur er sérstakur rannsóknarsjóður, Jafnréttissjóður, og er tilgangur hans að efla kynjarannsóknir og stuðla þannig að bættri stöðu kvenna og karla og framgangi jafnréttis. Auglýst hefur verið eftir umsóknum um styrki úr Jafnréttissjóði. Í samræmi við hlutverk sjóðsins verða veittir styrkir til rannsókna sem tengjast jafnréttismálum.

Jafnréttisviðurkenning 2008

Jafnréttisráð lýsir eftir tilnefningum til jafnréttisviðurkenningar fyrir árið 2008. Viðurkenningu geta hlotið fyrirtæki, stofnanir, sveitarfélög, hópar eða félagasamtök, sem á einn eða annan hátt hafa skarað fram úr eða markað spor á sviði jafnréttismála. 

Jafnréttisrannsóknir við Háskólann á Akureyri

Í byrjun júní stóðu Jafnréttisstofa og Rannsóknar- og þróunarmiðstöð Háskólans á Akureyri fyrir málþingi um rannsóknir í jafnréttismálum við Háskólann á Akureyri. Markmiðið með málþinginu var að kynna rannsóknir í jafnréttismálum. Einnig var fundurinn hugsaður sem vettvangur til þess að ræða og kynna það sem er í gangi í þessum málaflokki.

Ráðstefna um föðurhlutverkið í tengslum við EM 2008

Í tengslum við EM 2008 í knattspyrnu heldur félagsmálaráðuneytið í Austurríki alþjóðlega ráðstefnu um föðurhlutverkið. Ráðstefnan er haldinn 23. júní í Vínarborg. Markmiðið með ráðstefnunni er að skoða hvernig hægt er að hvetja karlmenn til að taka virkari þátt í foreldrahlutverkinu. Ýmsir sérfræðingar voru fengnir til þess að halda erindi í þessum tilgangi. Þar á meðal má nefna Ingólf V. Gíslason, lektor við Háskóla Íslands og mun hann meðal annars kynna fæðingarorlof feðra á Íslandi.

Vændi á Norðurlöndunum - norræn ráðstefna í Stokkhólmi

Ráðstefna um norræna rannsóknarverkefnið "Vændi á Norðurlöndunum" verður haldin 16. og 17. október 2008 í Stokkhólmi. Á ráðstefnunni verður reynt að svara ýmsum spurningum um útbreiðslu og birtingarmyndir vændis og mansals á Norðurlöndum. Einnig verður skoðað hvaða viðhorf fólk á Norðurlöndunum hefur til vændis, hvernig tekið er á vændi réttarfarslega séð og er einhver munur á félagslegum úrræðum á Norðurlöndunum hvað varðar vændi og mansal.

Stofnun alþjóðlegs jafnréttisseturs og jafnréttisskóla við HÍ

Utanríkisráðuneytið og Háskóli Íslands skrifuðu undir samstarfsyfirlýsingu um stofnun alþjóðlegs jafnréttisseturs og jafnréttisskóla þann 19. júní síðastliðinn. Í alþjóðlegu samstarfi hafa Íslendingar leitast við að leggja af mörkum sérþekkingu og reynslu sem þeir hafa aflað sér, einkum á sviði sjávarútvegs og nýtingar jarðhita. Utanríkisráðherra, Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, hefur ítrekað lýst því yfir að undanförnu að jafnréttismálin eigi að vera þriðja stoðin í íslenskri þróunarsamvinnu og alþjóðapólitík.

Mikil þátttaka í fyrstu kvennasögugöngunni á Akureyri

Í tilefni kvenréttindadagsins 19. júní var boðið upp á kvennasögugöngu um innbæinn á Akureyri.  Jafnréttisstofa , Minjasafnið á Akureyri og Zonta-klúbbarnir á Akureyri stóðu fyrir göngunni og þótti hún mjög fróðleg.